Haltu utan um alla QR-kóða fyrirtækisins
Prentaðir QR-kóðar eru komnir út um allt fyrirtækið - á skilti, matseðla, umbúðir og auglýsingar. Áfangastaðurinn breytist en enginn man lengur hver bjó kóðann til eða hvert hann átti að vísa. Hver deild hannar sína eigin útgáfu og innan tíðar lítur ekkert eins út.
Innihald kóðanna verður til í vafra notandans - fer aldrei um netþjóna okkar.
Hvað þú færð
Breyttu áfangastað hvenær sem er
Kóðinn á skiltinu er sá sami - þú stýrir því hvert hann vísar, hvenær sem er, án þess að prenta upp á nýtt.
Öll yfirsýn á einum stað
Sjáðu hvern einasta kóða, hvert hann vísar, hver breytti honum og hvenær.
Vörumerkjalæsing
Starfsfólk býr til kóða en getur ekki breytt útliti - allir kóðar fyrirtækisins líta eins út.
Fjöldagerð úr skrá
Hlaðið upp einni skrá og fáið hundruð kóða til baka í einu.
Tólið á eigin vef
Felldu QR-tólið sjálft inn á vefsíðuna ykkar svo starfsfólk eða viðskiptavinir búi til kóða án þess að fara annað.
Af hverju ekki að smíða þetta sjálf?
Að útbúa QR-kóða er einfalt og ódýrt. Hver sem kann að forrita getur skrifað virkni sem býr til kóða úr vefslóð á stuttum tíma.
Það sem kostar er annað: að reka endurbeiningarþjónustuna sem kóðinn treystir á, viku eftir viku, ár eftir ár, án þess að hún detti niður. Prentað skilti getur staðið í tíu ár - og þann dag sem þjónustan á bak við kóðann hættir að vera til hættir kóðinn að virka, og allir prentaðir kóðar fyrirtækisins deyja með henni.
Sá sem rekur endurbeiningarþjónustuna verður líka ábyrgðaraðili vinnslu fyrir skannagögnin sem safnast, til dæmis IP-tölur og staðsetningu, og ber þá ábyrgð sjálfur gagnvart notendum og lögum.
Fyrir fyrirtæki sem reka nú þegar eigin innviði og vilja fulla stjórn á ferlinu getur verið rétt að smíða þetta sjálf. Fyrir flest önnur er einfaldara að kaupa aðgang að þjónustu sem er þegar í rekstri og ber ábyrgðina.
Verðskrá
Lítil fyrirtæki og einyrkjar
1.900 kr. á mánuði
- Innfellt QR-tól á eina vefsíðu
- Eigin litir
- Ótakmarkaður fjöldi kóða sem gestir búa til
- Uppsetning með einu script-tagi
- Lítið qrkodi.is merki neðst í tólinu
Vinsælast
Fyrirtæki
4.900 kr. á mánuði
Allt í Lítil fyrirtæki plús:
- Eigið lógó í tólinu
- Ekkert merki frá okkur
- Val um hvaða kóðategundir birtast
Stofnanir og keðjur
14.900 kr. á mánuði
Allt í Fyrirtæki plús:
- Breytanlegir kóðar eftir umfangi - hafðu samband um fjölda
- Miðlæg yfirsýn: hver kóði, hvert hann vísar, hver breytti og hvenær
- Vörumerkjalæsing: starfsfólk getur ekki breytt útliti
- Fjöldagerð: hundruð kóða úr einni skrá
- Reikningur með kennitölu, ekki kortaáskrift
- Nafngreindur tengiliður og svartími samkvæmt samningi
Öll verð eru með virðisaukaskatti.
Innfellda tólið í eigin litum
Innfellda QR-tólið er ein af leiðunum sem starfsfólk eða viðskiptavinir búa til kóða á - í eigin litum, undir eigin vörumerki. Skiptu um vörumerki hér fyrir neðan og sjáðu breytinguna samstundis.
Efni
Slóðin sem QR kóðinn opnar, t.d. https://fyrirtaekid.is
Litir
Logo
Skrifaðu eða veldu emoji og það birtist í miðju kóðans
Útlit
M er gott sjálfgefið val. H þolir mest hnjask og er valið sjálfkrafa með logo.
Dragðu skrána beint inn í Canva - gagnsær bakgrunnur fylgir PNG skránni.
Innfellingarkóði
<div id="qrkodi"></div>
<script src="https://qrkodi.is/embed/qr.js" data-key="pk_thitt_lykilord" data-locale="is"></script>